Njósnir … varnarblik í auga Illuga? :)
október 15, 2006Eitt örskotsaugnablik sá ég glitta í svip á Illuga í Silfrinu í dag sem ég hef ekki séð áður. Getur verið, að þrátt fyrir sköruglegar áskoranir frá honum um að menn greini frá því hver sagði hverjum hvað … þá risti þekking hans á þessu máli dýpra en knörr í kröppum dansi? Ekki ætla ég honum að vera í hringiðu málsins, en skyndilegt varnarblik í auga sannfærði mig um að hann væri ekki alveg saklausi sveitadrengurinn, heldur hefði á stundu valið að standa utan við málið. Það væri ákaflega áhugaverð tilbreyting ef prókjörunum væri nú hleypt í smá njósnadans :)