Svona ætla ég að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðismanna … ef ekkert breytist fram á föstudag

október 21, 2006

Prinsippið hjá mér er að koma nú nú þeim konum sem mér finnst frambærilegar, eins ofarlega og mögulegt er …. Guðfinna fer alveg óendanlega í taugarnar á mér, en ég ætla að fara á kosningaskrifstofuna hjá henni á eftir og skoða stemninguna, gefa henni smá séns. Tími Ástu og Björns B er liðinn … þau eru orðin eins og Geir Ólafs í poppinu, það var e-n tímann gaman af þeim en það eru allir löngu búnir að gleyma þeim tíma og ástandið bara orðið vandræðalegt.

  1. Geir : Alltaf traustu. Hefðin færir honum 1. sætið þó hnýtingar hans út í Samfylkinguna upp á síðkastið séu fyrir neðan hans virðingu.
  2. Pétur Blöndal : Ætti að vera efstur á lista fyrir að fylgja bestu samvisku í flestum málum.
  3. Sigríður Andersen : Bara fjandi frambærileg það sem ég hef heyrt. Virkar fersk.
  4. Siggi Kári : Nagandi mórall yfir að hafa klúðrað úrslitaspurningunni í spurningakeppni grunnskólanna ;)
  5. Dögg Páls : Rökföst, hæfilega vinstrisinnuð :)  og líklega næsti heilbrigðisráðherra
  6. Guðlaugur Þór : Hefur vaxið upp úr barnaskapnum síðasta árið og er bara að verða nokkuð trúverðugur fulltrúi fjölskyldunnar
  7. Birgir Ármanns : Góðlegasti hægri öfgamaður sem þetta land hefur alið … en setningin hans um að enn ætti að grisja regluverkið hífði hann upp í þetta sæti hjá mér
  8. Illugi : Hmmmm … veit ekki, en þessi maður á auðvitað að vera á þingi.  Hef bara ekki pláss fyrir hann ofar.
  9. Grazyna Okuniewska : Fær þetta sæti út á viðleitni. Mér finnst að það eigi að gefa útslendinum séns, þau eru að berjast við að tjá sig á íslensku og koma fulltrúum vaxandi stéttar hérlendis á þing.
  10. Guðfinna rektor: Síðbúið krafs til að reyna að bæta kynjajafnvægið á listanum.  Kannski e-ð sé í hana spunnið?

Skildu eftir svar